um okkur
Verslun með sögu og sál
Þar sem jólatöfrarnir lifa allt árið um kring
Í yfir aldarfjórðung hefur Jólabúðin verið sannkallað ævintýraland sem fyllt hefur samfélagið okkar af gleði, hlýju og ósviknum jólatöfrum.
Draumur sem varð að veruleika
Þegar búðin var sett á sölu árið 2023 ákváðu vinkonurnar Jóna og Maria að stökkva á tækifærið og gera hana að sinni. Þær áttu sér sameiginlegan draum: Að varðveita þennan ástkæra bút af jólunum og tryggja að allir sem stíga inn fyrir þröskuldinn myndu áfram finna fyrir sömu gleðinni.
Falleg minning sem lifir áfram Lífið tekur þó stundum óvænta stefnu og árið 2024 kvöddum við Mariu okkar allt of snemma. Missirinn skildi eftir sig djúpt skarð í hjörtum okkar, en andi hennar er hvergi horfinn. Draumurinn sem þær vinkonurnar deildu og allar fallegu minningarnar um hana lifa áfram í hverju horni búðarinnar enn þann dag í dag.
Ást, alúð og samstaða
Í dag standa Jóna og Erika vaktina og reka Jólabúðina saman. Þær leggja hjarta og sál í starfið – alltaf með brot af Mariu í öllu sem þær gera. Erika er enginn nýgræðingur þegar kemur að jólagleðinni, en hún hefur stýrt versluninni á Laugavegi af mikilli ást og alúð undanfarin sex ár og átt ríkan þátt í að móta þennan sérstaka stað sem búðin er í dag.
Svo miklu meira en bara verslun
Fyrir okkur er Jólabúðin ekki bara verslun. Hún er hlýr og notalegur staður þar sem dýrmætar minningar verða til, vináttan er í öndvegi og töfrar jólanna lýsa upp tilveruna – hvern einasta dag ársins.
Kíktu við og upplifðu jólin með okkur!

UM OKKUR
Starfsfólk og eigendur
Við erum Jóna og Erika, Við rekum Litlu Jólabúðina í hjárta Reykjavíkur!
Við höfum mikið dálæti á hæfileikaríku listafólki og glæsilegu handverki þess. Það er eitthvað afskaplega töfrandi við handgerða muni – þeir bera með sér þann tíma, alúð, sköpunargleði og þann einstaka neista sem einfaldlega er ekki hægt að herma eftir.
Í versluninni okkar bjóðum við upp á einstaka handgerða skrautmuni sem hafa algerlega stolið hjörtum okkar, og koma vonandi til með að stela þínu líka.
Við erum afskaplega stoltar af því að geta boðið þér upp á þær vörur sem við höfum að bjóða og á sama tíma fagnað listafólkinu sem hannar og býr til þessa einstöku muni. Veitt þeim rými til að skína og njóta þeirrar viðurkenningar og athygli sem þau eiga skilið.

Jóna
Stofnandi og eigandi Litlu Jólabúðarinnar og jolabudin.is.
Erika
Verslunarstjóri Litlu Jólabúðarinnar á Laugarvegi og rekstrarstjóri vefverslunar á jolabudin.is